|
Gamli góði, sæti og hreini skólinn minn
|
23.07.2009 21:32:29 / helena
Sumarið er komið og það styttist nú reyndar í annan endan á því. Ég hef notið því sem af er að sumri alveg gífurlega vel. Heilsan hefur verið sæmileg, dálítið upp og niður, en mætti vera betri sérstaklega miðað við að ég er ekki að vinna neitt. Ég bjóst einhvern veginn við því að það sem ég er bara í fríi í sumar myndi heilsan verða súper. En það er því miður ekki alveg svoleiðis. Ég er samt búin að vera dugleg í ræktinni til þess að byggja mig upp fyrir veturinn, en ég held áfram í sjúkraliðanum í haust, nema núna í Fjölbrautarskólanum í Ármúla, það munar ansi miklu að fara þangað í staðinn fyrir að fara alla leið upp í Breiðholt! Við Dagur erum annars búin að hafa það mjög notalegt í sumar, í maí fórum við í gamla húsið sem tengdaforeldrar mínir eiga á Þingeyri og vorum þar í tæpa viku, þvílík sælu ferð, enda eru Vestfirðirnir alveg stórfenglegir! Ég var svo í sumarskólanum í líffæra-og lífeðlisfræði og kláraði það með 9 í lokaeinkunn, frekar sátt með mig  Við skötuhjúin höfum farið í tvær útilegur saman, í Svínadal og á Úlfljótsvatn með Erlu og Einari. Svo fór ég með mömmu, pabba, brósa, mágkonu, fjórum bróðursonum og einu ófæddu bróðurbarni í Húsafell, þar sem við höfðum það notalegt í skóginum og sungum svo fram á nótt við varðeld. Svo fór ég í dagsferð með norsku frændfólki í Landmannalaugar um daginn, það var frábært að komast þangað, en það eru heil 4 ár síðan í fór síðast þangað, ég sem var nánast alinn upp þarna á fjöllum  Vonandi munum við þó leggja víðar land undir fót í sumar. Við erum líka komin með þessa fínu stétt fyrir utan hjá okkur, svo ég er búin að eyða miklum góðum tíma að sitja úti og njóta veðurblíðunnar sem hefur verið, og við grillað og notað þennan frábæra garð sem við erum með  Njótið sumarsins elskur! Hér er smá sýnishorn frá því sem af er liðið af sumrinu mínu:  Fólkið í kjallaranum með grillveislu í kuldanum í maí  Dagur í gleðinni á Vestfjörðunum  Frisbí í garðinum okkar í maí Við í Skorradal
 Atli með Högna Jökul og Ásgeir Jaka í Húsafelli  Hrannar Örn að kafa eftir golfkúlum
 Arnþór Ósmann sást nú varla í ferðinni því hann var alltaf að leika við krakka á tjaldsvæðinu   Landmannalaugar  Þorsteinn, pabbi, ég og norðmennirnir (stolin mynd frá pabba  )  Grill hjá Erlu og Einari  Dagur og Einar að biðjast fyrir....eða bara að pissa
»
09.03.2009 16:03:23 / helena
Mig langaði bara að lát vita hvað hefur gerst síðan síðast. Fyrir um það bil tíu dögum talaði ég við heimilislækninn minn og spurði hvort hann gæti ekki gert eitthvað fyrir mig þangað til ég fengi tíma hjá heila- og taugasérfræðingnum mínum, ég var bara að gefast upp á að krampa daglega. Heimilislæknirinn lét mig fá Stesolid sem er svona, róandi, vöðvaslakandi og krampaslakandi og er oft gefið í krömpum, ég hef fengið þetta margsinnis upp á spítala. En nú átti ég s.s. að taka þetta á seinni partinn til þess að koma í veg fyrir krampana (ég fæ þá eiginlega bara á kvöldin). Þetta virkaði vel og ég fékk bara einn krampa eftir að ég byrjaði á þessu. Ég átti pantaðan tíma hjá sérfræðingnum mínum 9. mars. s.s. í dag og hitti hann áðan. Þessi læknir er náttúrulega bara æði, hann leggur sig fram við að hjálpa mér annað en gamli læknirinn minn sem bara gafst upp á mér! En Martin (sá sem ég er að hitta núna) hækkaði skammtinn á flogalyfjunum mínum, og nú á ég að taka þau tvisvar á dag í stað einu sinni. Hann vill að ég haldi áfram að taka Stesolitið um einhvern tíma og svo pantaði hann fyrir mig tíma í segulómun til þess að sjá hvernig æxlið mitt dafnar þarna inni. Svo nú er bara spennandi að sjá hvort þetta far nú ekki bara allt að koma Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þetta hérna á blogginu er að ég hef allt of lengi verið að fela þessi veikindi. Oft þegar ég hef verið spurð hvernig ég hefði það segi ég bara með bros á vör ,,allt gott” en verið svo bara hund lasin. Mér finnst bara betra að þið vitið hvað er í gangi og ég hætti þá kannski að þykjast. Mér finnst að þeir sem mér þykir vænt um eigi rétt á að vita hvað er í gangi og bloggið er tilvalinn vettvangur til þess að koma því til skila. En jæja, njótið lífsins, Helena 
»
25.02.2009 16:16:18 / helena
Ég er búin að vera lasin núna síðan ég
skrifaði síðustu færslu. Í síðustu viku var ég að fá krampa nánast daglega og
kippirnir eru farnir að gera vart við sig aftur. Nú er ég bara svo þreytt og
úthaldslaus. Ég fór ekkert í sjúkraþjálfunina í tvær vikur en er nú byrjuð að
fara aftur, það er æði. Ég er hins vegar alveg búin á því eftir æfingarnar. Ég
hef ekkert getað sinnt skólanum út af þessu bölvaða veseni sem er glatað, því
fylgir bara kvíði og stress sem hjálpar manni svo sem ekkert að ná heilsu á ný.
>Stundum finnst mér ég dálítið eins og fangi í eigin
íbúð þessa dagana, ef ég ætla eitthvað út þurfa það að vera stuttar ferðir því
ég verð svo fljótt þreytt og þreytan getur orsakað krampa, sem mér finnst ekki
skemmtilegir, sérstaklega á almannafæri. Ég þori líka lítið að fara ein út, því
það hefur komið fyrir að ég hef fengið krampa á almannafæri og verið látin
afskiptalaus. Plús það að ég fæ samviskubit að vera úti þegar ég á að vera í
skólanum. Þannig að ég er bara heima þessa dagana að horfa á Sex in the City, en
ég reyni auðvitað að fara út úr húsi á hverjum degi svo ég haldi geðheilsunni!> > >
>Ég verð samt að segja að ég er drullu, skíta
svekkt yfir þessu veseni, ég var orðin svo hress og svo bjartsýn, allt var
farið að ganga svo vel þangað til að ég fæ svo þetta bakslag. Helvítis,
fokking, fokk! Í augnablikinu finnst mér eins og ég muni aldrei geta klárað
þennan skóla og aldrei geta stundað vinnu af fullum krafti. > > > En það er nú bara
svona þegar neikvæðnin tekur öll völd yfir manni. En ég reyni þó yfirleitt að
halda í jákvæðnina og hafa gaman af lífinu. Þótt það sé stundum erfitt þegar
manni finnst það ósanngjarnt. Mér finnst til dæmis hundleiðinlegt að geta ekki
keyrt bíl, geta ekki farið að hitta vini mína hvenær sem er, ekki getað rennt
austur fyrir fjall að heimsækja ömmu og afa, farið á djammið, farið í sund,
stundað skóla og vinnu eins og venjuleg manneskja. En ég er þó ekki að eyða
morðfjár í rekstur á bíl, ég hef Facebook til að tala við vinina ég spara mér
heilmikinn pening á að fara aldrei á djammið, ég á yndislegt fólk sem stendur
við bakið á mér, það er svo mikið af fólki sem á það svo miklu, miklu verra en ég. Svo
þegar upp er staðið er ég bara heppin.
Ég ætla að reyna að láta mér batna. Skemmtið ykkur vel,
Helena
 P.s. Blog Central finnst ég greinilega þurfa vera jákævð því þessir broskallar koma bara sjálfkrafa og ég get ekki tekið þá í burtu!!
»
07.02.2009 17:52:54 / helena
Það er langt síðan ég hef hent bloggfærslu hér inn, síðanst 5. nóvember! Ég er nú í skólanum, ég tók þá ákvörðun að vera bara í 9 einingum þessa önnina og ekki fara í verknámið. Ég hef bara brennt mig allt of oft á því að ætla mér of mikið og þurft svo að hætta í áföngum á miðri önn. Það er ekkert sérlega uppörvandi. Síðustu önn kláraði ég bara 3 einingar (byrjaði í 18!). Enda var ég eiginlega bara hundveik alla önnina. En ég er þó bjarstýn á þessa önn, ég er byrjuð á nýjum lyfjum og ég finn ótrúleg mikinn mun á mér eftir að ég byrjaði á þeim. Flogakippirnir sem ég var að fá á hverjum einasta degi, oft á dag eru nánast horfnir og orkan þar af leiðandi mun meiri! Ég fæ aðallega kippi núna á kvölin og þegar ég er þreytt. En ég hef fengið stöku krampakast. Ég hugsa að læknirinn minn hækki skammtinn á flogalyfjunum þegar ég fer næst til hans. Ég er nú líka byrjuð í sjúkraþjálfun þrisvar í viku, þetta er einskonar endurhæfing, þar sem markmiðið er að ná upp meira þreki og styrk, sérstaklega þá í vinstri helmingnum sem fékk lömun í sig hérnu um árið. Þetta gengur bara vel allt samanJ Annars er ég búin að vera nokkuð dugleg að taka þátt í mótmælum síðustu vikurnar, búin að slá duglega í pottlok og sælgætisdollur (sjúkraþjálfun hvað?) Ég er ánægð með árangurinn, þótt ég vilji sjá mun meiri breytingar á íslensku stjórnkerfi! Ég vona að við eigum eftir að sjá breytingar til batnaðar, bilið á milli “ríkra” og “fátækra minnki” og réttlætið muni ráða ríkjum. Ég hef verið ótrúlega stolt af íslnskum almenningi síðustu vikur, þvílíka samstöðu og samkennd hef ég ekki upplifað fyrr. Tilfinningin að tromma í takt við nokkur hundrum manns er frábær. Íslenska þjóðin virðist loks vera að vakna til lífsins, og það þurfti ekki lítið til! Við megum bara ekki sofna á verðinum. Ég á annars að vera að læra núna, er að fara í þrjú próf í næstu viku. En fannst tilvalið að skrifa hér inn eina færslu í lærdónspásu Lifið heil! Helena P.s. að lokum læt ég fylgja nokkrar myndir frá mér: 
»
02.02.2009 19:55:45 / helena
Þetta ljóð eftir Halldór Laxnes á frekar vel við þessa dagana. Ó hve létt er þitt skóhljóð ó hve leingi ég beið þín, það er vorhret á glugga, napur vindur sem hvín, en ég veit eina stjörnu, eina stjörnu sem skín, og nú loks ertu komin, þú ert komin til mín.
Það eru erfiðir tímar, það er atvinnuþref, ég hef ekkert að bjóða, ekki ögn sem ég gef, nema von mína og líf mitt hvort ég vaki eða sef, þetta eitt sem þú gafst mér það er alt sem ég hef.
En í kvöld lýkur vetri sérhvers vinnandi manns, og á morgun skín maísól, það er maísólin hans, það er maísólin okkar, okkar einíngarbands, fyrir þér ber ég fána þessa framtíðarlands.
(Kem kannski bráðum með almennilegt blogg)
»
31.12.2008 16:31:19 / helena
gleðilegs nýs árs. Takk fyrir árið sem er að líða og megi 2009 vera betra en 2008   p.s. munið að láta ekki álfana gynna ykkur með gylliboðum sínum á nýárs nótt.
»
27.11.2008 16:08:41 / helena
Það er kannski dálítið snemmt fyrir jólalög, en það er aldrei of snemmt fyrir þann boðskap sem þetta fallega lag og þessi fallegi texti inniheldur;
|
Út með illsku og hatur
inn með gleði og frið.
Taktu á móti jólunum
með Drottinn þér við hlið.
Víða er hart í heimi,
horfin friðar sól.
Þar geta ekki allir haldið
gleði- og friðar jól.
Mundu að þakka Guði
gjafir frelsi og frið,
þrautir, raunir náungans
víst koma okkur við.
Bráðum klukkur klingja,
kalla „Heims um ból.“
Vonandi þær hringja flestum
gleði og friðarjól.
Biðjum fyrir öllum þeim
sem eiga bágt og þjást
víða mætti vera meira um
kærleika og ást.
Bráðum koma jólin
bíða gjafirnar
út um allar byggðir
verða boðnar kræsingar.
En gleymum ekki Guði
hann son sinn okkur fól
gleymum ekki að þakka
fyrir gleði og friðarjól. |
»
05.11.2008 19:36:13 / helena
- Að Barack Obama verði næsti forsteti Bandaríkjanna, og vona að hann geti gert heiminn sem við búum í að betri stað, og sópað upp sóðaskapinn eftir Bush.
- Að bráðavaktin byrjar aftur í kvöld
- Að ég er loksins komin með almennilegan taugalækni sem nennir að sinna mér.
- Að hinn sami læknir hefur gefið mér ný flogalyf, því hann telur að ég sé með stanslausa flogavirkni í heilanum sem veldur mínum endalausu veikindum, kippum í líkamanum og stöku krampakasti. (nú er bara að krossa fingur að lyfin virki!!)
- Að brátt nálgast hinn yndislegi desember mánuður með tilheyrandi ljósum og öðrum krúttlegheitum.
- Að eiga lang, lang besta kærastan í öllum heiminum!!
- Að eiga frábæra fjölskyldu og tengdafjölskyldu
- Að ég er að fara á Sigur Rósar tónleikana í höllinni þann 23. nóvember!! Ég hlakka sko mikið til þess

Minn heittelskaði, hver veit nema hann verði forseti Íslands einn daginn
»
05.10.2008 22:23:03 / helena
Enn og aftur er langt um liðið frá síðastu færslu. Það er fátt að frétta, ég er bara að reyna eins og ég get að verða sjúkraliði, skólinn er skemmtilegur, þar að segja þegar ég kemst í hann, það er ekkert allt of oft, sértaklega nú þegar ég er í starfsnáminu. En starfsnámið tekur fimm vikur, ég þarf að taka 15 vaktir á þessum tíma, s.s. 3 vaktir á viku. Þetta er ansi strembið með skólanum, en ég reyni að berjast í gegnum þetta  Ég er í starfsnáminu á almennri skurðdeild sem er mjög spennandi og skemmtilegt, og ótrúlega margt að læra. Svo er ég bara orðin hundleið á þessum endalausu veikindum, nú var ég að fá nýjan taugalækni og ég vona að hann geti hjálpað mér einhvað, þetta gengur ekki svona lengur!! Ég á að fara í einhvað heilalínurit á næstunni, og svo fæ ég kannski einhver ný lyf. Ég er nýbúin að fara í segulómun, og þarf nú ekki að fara nema á eins árs fresti í það  þar sem læknarnir segjast sjá alveg hvernig þróunin er á þessu æxli, það er að stækka ca. 1 mm á ári þess vegna þykir þeim nóg að taka mynd einu sinni á ári. Við Dagur fórum til Króatíu um daginn sem var draumur í dós. Við tókum okkur bara viku frí og slöppuðum af í hlýju loftslaginu við Adríahafið. Við gerðum ekki baun í bala, lágum bara við sundlaugarbakkan, á ströndinni, syntum í sjónum, fórum í spa og átum afspyrnu mikið. Þetta var sko afslöppun alveg út í gegn. Þetta var líka alveg yndislegur staður sem við vorum á, ótrúlega fallegt þarna og rólegt. Ég væri alveg til í að fara þangað aftur við tækifæri. Það var frábært að skreppa í endurnæringu og stytta aðeins veturinn  Dagsi minn er ótrúlega duglegur, hann er að vinna á Kleppi með skólanum, í Eymundsson, hann verður með einstakling í liðveislu í vetur og svo að þjálfa Morfíslið Borgó! Ég er líka ótrúlega montin af honum  Jæja ég ég veit ekki hvort ég leyfi þessu bloggi að standa eða eyði því eftir 5 mín. ég er ekki vön að vera tjá mig svona um hausmálin svona obinberlega...við sjáum til  Dagur á kvöldsundi  Sumar og sól í september  Ég fann svaka skemmtilegt leiktæki fyrir börn í Porec  Svaka sniðugt svona timer á myndavélinni   Ég að pósa með Porec í bakgrunn  Dagur að ferðalokum
»
05.09.2008 13:52:22 / helena
Það sem pirrar mig mest núna:
Ríkisstjórnin! Til þess að verða ljósmóðir þarft þú að læra hjúkrunarfræði í fjögur ár (240 einingar) og svo taka mastersnám í ljósmóðursfræði sem tekur tvö ár (120 einingar). En samt fá ljósmæður lægri laun en hjúkrunarfræðingar. Ljósmæður eru þær konur sem sjá til þess að móðir og barn séu heilbrigð alveg frá fyrsti vikum meðgöngunnar og fyrstu vikurnar eftir að barnið er fætt. Ljósmóðirin er fyrsta mannekskjan sem börnin sjá þegar þau koma í heiminn! Þessu starfi fylgir gríðalega mikil ábyrgð, en samt finnst yfirvöldum í lagi að borga þeim laun sem hæfa engan veginn þeirra verksviði og ábyrgð. Mér þætti gaman að sjá ef þeir sem sitja í okkar ágætu ríkisstjórn ættu að fá sömu laun!
http://www.youtube.com/watch?v=9k6AF7p3LdM
Geir H. Haarde er kúkalabbi
Og svo eru það bæturnar sem Breiðavíkurdrengirnir eiga að fá: 300 þús. krónur! Er líf fólks ekki metið að meiri verðleikum en þetta? Þegar þessir menn voru litlir strákar voru þeir teknir frá fjölskyldum sínum, fluttir á afskekktan stað þar sem þeir voru látnir þræla, notaðir sem kynlífsleikföng og hreinlega pyntaðir. Ég sá heimildarmyndina sem gerð var um þessa menn og hefur þetta haft mjög mikil áhrif á líf þeirra, eins og gefur að skilja. Þeir voru rændir æsku sinni og í raun allri ævi sinni, því flestir (ef ekki allir) leiddust þeir útí óreglu. Og nokkrir hafa tekið eigið líf. Og þetta er metið uppá 300 þúsund krónur, ævi þessara manna er metin uppá þrjúhunduð þúsund krónur!!! Þessar aumu þrjú hundruð þúsund krónur eru bara brotabrot af þeim launum sem ráðherrar fá á mánuði.
Vá hvað þetta er ósanngjarnt!! Hvar er réttlætið??
»
23.08.2008 20:00:10 / helena
Ísland-Frakkland á 20" risaskjá í kjallaranum á Grenimel 9 á morgun, vinir og vandamenn velkomnir
»
22.08.2008 15:29:40 / helena
Vááá hvað ég er stolt af íslenska handboltalandsliðinu núna, þvílíkt afrek, þvílík gleði!! Og þvílík geðshræring sem varð í stofunni á Grenimelnum þegar ljóst var að við erum á leið í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum (ég var reyndar bara ein í sofunni ásamt Júlíu, sem tók þessu með jafnaðargeði). Við erum að fara að sjá landsliðið á verðlaunapalli, pælið í því við þessa litla þjóð eigum þvílíkar stjörnur!! Ég segi bara eins og forsetafrúin okkar (sú dúlla) "Ísland er ekki lítið land, Ísland er stórasta land í heimi"!!!! Mér skilst að kínverjarnir í salnum hafi verið farnir að kalla jia yuu sem þýðir víst áfram Ísland á kínversku....!! ég tek undir með kínverjunum: Jia yuu...áfram Ísland
»
15.08.2008 00:43:35 / helena
Ég er ekki dauð enn, hef bara ekki nennt í tölvu í sumar
Ég er ekki sátt með þetta helvítis borgarstjórnarbrölt endalaust. Ég skil ekki þennan fjölda sem teljarinn á síðuna mína sýnir, ég held hann sé bara bilaður. Ég sé ykkur seinna  Hér er fólkið sem kom mér í heiminn á gangi
»
10.06.2008 00:27:59 / helena
Þið afsakið bloggleysið, en það er komið sumar og þá nenni ég takmarkað að blogga. En já það er komið sumar og ég er byrjuð að vinna sem nemi á Landakoti, mér líkar það bara ansi vel  Ég er líka að taka 8 einingar í fjarnámi í FÁ og vona ég bara að mér gangi vel með það, en þetta eru bara tveir áfangar, næringarfræði og siðfræði, svaka stuð. Eftir mánaðarmótin fæ ég nýja nágranna, og ekki af verri endanumum en þær María og Dagbjört eru að fara að flytja í íbúðina við hliðina á okkur, ég hlakka til þess, það verður ábyggilega stuð hjá okkur fjórum:þ Öhhh..já, ég hef ekki meir að segja, nema að ég ætla bara að njóta sumarsins í botn og fara í fleiri útilegur. En við dagur skelltum okkur í fyrstu útilegu um mánaðarmótin, þegar við rúlluðum alla leið austur í Skaftafell og Jökulsárlón með viðkomu á morgum fallegum stöðum. Nóg af masi. Hafið það sem allra best og njótið sumarsins í þennan stutta tíma sem að er!! Dagur að leika sér í Reynisfjöru Jökulsárlón
»
15.05.2008 11:30:07 / helena
Nú á ég að vera að læra fyrir sjúkdómafræðipróf, en ég nenni því ekki, enda er líka miklu gagnlegra að blogga. Prófin mín þetta árið eru bara tvö, ég fór í annað í gær og fer svo í hitt á morgun. Það er eins gott fyrir veðurguðina að hafa svona gott veður um helgina eins og ég sé að er núna útum gluggann, þegar ég er komin í sumarfrí!! Ég fór reyndar með teppi í gær útí garð sem ég breiddi á grasið og lærði undir berum himni, svaka kósý. Það er reyndar dálítil traffík af fólki hérna fyrir utan garðin, þar sem húsið er á horni. Og það er alveg fyndið hvað fólki fannst greinilega merkilegt að sjá unga stúlku liggja út í garði með skólabækur og kött sér við hlið. fólk ætlaði sko alveg að snúa sér úr hálsliðnum til þess að bera þessa einstöku sjón augum. Haha...fólk er flest!! En annars langar mig til þess að fara út núna og leika mér, helst langar mig til þess að fara í tjaldferðalag í nokkra daga, en það er víst ekki komið alveg nógu mikið sumar til þess. Ég þori nú varla að segja frá því, en ég lét undan þrýsingi og stofnaði svona Flickr síðu þar sem er einhvað af myndum frá mér. Slóðin er http://www.flickr.com/photos/snorkstelpa ef þið hafið áhuga. Jæja ég ælta að fara að lesa um æxlisvökt og genaveilur. Gleðilegt sumar þið sem eruð búin með próf!!!Hundurinn sem býr á móti okkur, hann er alger dúlla, kíkir alltaf svona á mann yfir girðinguna þegar hann heyrir í manni
»
Síður: 1 2 3 ... 18
|
Heimsóknir
Í dag: 70 Alls: 123161
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|